Tvöfaldur sigur hjá Almenna

04. desember 2016

Tvöfaldur sigur hjá Almenna

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur verið valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu í flokki lífeyrissjóða á almennum markaði af fagtímaritinu Investment Pension Europe. Að auki var Almenni valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu meðal þjóða með færri en milljón íbúa og er það annað árið í röð sem Almenni hlýtur þau verðlaun. Þeim verðlaunum deilir Almenni að þessu sinni með öðrum íslenskum lífeyrissjóði.

Almenni var einnig tilnefndur annað árið í röð fyrir bestu samsetningu lífeyrisréttinda í Evrópu.

Í umsögn dómnefndar segir m.a. að sjóðurinn skari fram úr flestum öðrum í ráðgjöf og upplýsingamiðlun auk þess sem notkun upplýsingatækni í þágu sjóðfélaga sé til fyrirmyndar. Í því sambandi var nýi sjóðfélagavefur Almenna sérstaklega nefndur til sögunnar.

Fyrirkomulag sjóðsins, þ.e. að þriðjungur af skylduiðgjaldi sé lagt í erfanlegan séreignarsjóð, vakti einnig athygli dómnefndar auk þess sem Ævileið Almenna lífeyrissjóðsins þótti heppileg og kostnaðarhlutfall lágt.

Þetta er sextánda árið sem IPE-verðlaunin eru veitt af fagtímaritinu Investment Pension Europe en verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2001. Umfang verðlaunanna hefur vaxið ár frá ári sem og fjöldi þátttakenda en þeir voru á fimmta hundrað í ár frá 25 löndum. Veitt voru verðlaun í 16 flokkum eftir landsvæðum og í 13 þemabundnum flokkum auk heildarverðlauna.

Ólafur Jónsson, stjórnarformaður Almenna veitti verðlaunum viðtöku.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.