Almenni valinn lífeyrissjóður ársins í Evrópu

15. júlí 2017

Almenni valinn lífeyrissjóður ársins í Evrópu

Fagtímaritið European Pensions

Fagtímaritið European Pensions hefur valið Almenna lífeyrissjóðinn lífeyrissjóð ársins 2017 í Evrópu. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars að Almenni sé „framúrskarandi í þjónustu sinni við sjóðfélaga og hafi sjóðfélaga og þjónustu við þá í forgangi í allri starfsemi sinni“.

Verðlaunin og ummælin eru Almenna mikill heiður ekki síst í ljósi þess að allir lífeyrissjóðir í Evrópu, stórir sem smáir geta gert tilkall til þeirra. Þetta er fimmta árið í röð sem tímaritið tilnefnir Almenna til verðlauna. Þrjú ár í röð var sjóðurinn tilnefndur til verðlauna fyrir samskipti við sjóðfélaga og á síðasta ári var sjóðfélagavefur Almenna ein af fimm nýjungum sem tilnefndar voru sem nýjungar ársins.

European Pensions tímaritið þykir vera í fremstu röð á sínu sviði og býður lesendum upp á nána greiningu á helstu fréttum um fjárfestingar og lífeyrismál í Evrópu ásamt ítarlegri umfjöllun um strauma og stefnur í hverju landi fyrir sig. Það er breska útgáfufyrirtækið Perspective Publishing sem gefur tímaritið út en auk European Pensions gefur fyrirtækið út fagtímaritin Pension Age, um lífeyrismál í Englandi og Charity times, Retail Systems, Financial Sector Technology, Continuity Insurance & Risk og Cable & Satellite International. Öll tímaritin eru undir upplagseftirliti og stefna að því að vera í fremstu röð á sínu sviði.

Í ár hefur Almenni hlotið verðlaun hjá tveimur fremstu fagtímaritum um lífeyrismál í Evrópu en í desember síðastliðnum var Almenni valinn besti  opni lífeyrissjóður í Evrópu hjá Investment & Pensions Europe (IPE). Hjá því tímariti var sjóðurinn einnig, annað árið í röð, valinn besti lífeyrissjóður í Evrópu hjá þjóðum með færri en milljón íbúa. Þessi tvö fagtímarit eru útbreiddust og talin standa hvað fremst í umfjöllun um lífeyrismál í álfunni.

Þessar viðurkenningar eru sjóðnum heiður og hvatning til að gera enn betur í þjónustu við sjóðfélaga.

Myndatexti: Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, með verðlaunagripina sem fagtímaritin European Pensions og IPE veittu sjóðnum.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.