Ársfundur 2016

18. mars 2016

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl 2016 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura kl. 17:15.

Dagskrá.

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Ársreikningur 2015 og tryggingafræðilega athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs.
  3. Kynning á fjárfestingarstefnu Almenna lífeyrissjóðsins.
  4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins.
  5. Kosning stjórnar. Sjá kynningu á frambjóðendum með því að smella hér.
  6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags.
  7. Ákvörðun um laun stjórnar.
  8. Önnur mál.

Vakin er athygli á því að framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund sjóðsins. Framboðsfrestur til stjórnar rennur út þann 31. mars 2016 kl. 24:00. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is. Vakin er athygli á því að samkvæmt samþykktum skal stjórn sjóðsins skipuð þremur konum og þremur körlum. Í stjórn eru þegar þrjár konur þannig að eingöngu karlar geta gefið kost á sér að þessu sinni.

Hægt er að sjá tillögur að breytingum með því að smella hér og Ársskýsla Almenna 2015. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sjóðsins, www.almenni.is.

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.

Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.