Ársfundur 2019

27. mars 2019

Ársfundur 2019

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 11. apríl 2019 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura kl. 17:15.

Dagskrá.

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Ársreikningur 2018 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs.
  3. Kynning á fjárfestingarstefnu.
  4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. Sjá tillögur hér, samþykktir með tillögum hér.
  5. Kosning stjórnar. Smelltu hér til að sjá kynningu frá  frambjóðendum.
  6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags.
  7. Ákvörðun um laun stjórnar.
  8. Önnur mál.

Vakin er athygli á því að framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund sjóðsins. Framboðsfrestur til stjórnar rennur út þann 4. apríl 2019 kl. 24:00. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.

Samkvæmt samþykktum skal stjórn sjóðsins skipuð þremur konum og þremur körlum. Á ársfundi sjóðsins lýkur kjörtímabili Davíðs Ólafs Ingimarssonar og Sigurjóns H. Ingólfssonar og því skal kjósa tvo í aðalstjórn. Að auki skal kjósa einn varastjórnarmann sem má vera af hvoru kyni þar sem fyrir eru varastjórnarmenn af sitt hvoru kyni. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.

Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.