Auglýst eftir framboðum
07. febrúar 2023
til stjórnar Almenna
Kjörnefnd auglýsir eftir framboðum til stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins.
Stjórnarkjör fer fram með rafrænum hætti.
- Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal stjórn skipuð þremur konum og þremur
körlum og þriggja manna varastjórn skal skipuð minnst einum karli og einni konu. - Að þessu sinni er eitt sæti karls og eitt sæti konu til kjörs í aðalstjórn. Bæði karlar
og konur geta því boðið sig fram til aðalstjórnar og varastjórnar að gættum
sjónarmiðum um kynjahlutföll. - Allir sjóðfélagar geta boðið sig fram til stjórnar en nánari hæfisskilyrði er að
finna í 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi
lífeyrissjóða.
Framboðsfrestur er til kl. 23:59 þann 22. febrúar 2023. Framboð
verða að berast kjörnefnd fyrir lok framboðsfrests til þess að teljast
lögleg. Hægt er að senda framboð á netfangið kjornefnd@almenni.is
Kjörnefnd Almenna lífeyrissjóðsins, 8. febrúar 2023
Ólafur H. Jónsson, Ingvar Júlíus Baldursson og Lára V. Júlíusdóttir
Nánar um framboð:
- Með framboðum skulu fylgja helstu
upplýsingar um frambjóðanda, s.s. nafn,
kennitala, netfang, sími og heimilisfang - Taka skal fram hvort framboð er aðeins
til aðalmanns, aðeins til varamanns
eða aðalmanns og varamanns til vara - Frambjóðendum verður boðið að kynna
sig á vef sjóðsins
Hér má sjá Reglur um skipan kjörnefndar og framkvæmd stjórnarkjörs.