Vel heppnaður fundur um ávöxtun
27. janúar 2020
![Vel heppnaður fundur um ávöxtun](https://www.almenni.is/wp-content/uploads/frettir/grétar-og-kvikuaðal-657x414.jpg)
Fimmtudaginn 23. janúar síðasliðinn stóð Almenni lífeyrissjóðurinn fyrir morgunfundi fyrir sjóðfélaga þar sem farið var yfir ávöxtun ársins 2019 og rætt um horfur á mörkuðum í ársbyrjun 2020
Á fundinum voru erindi Grétars Más Axelssonar sjóðstjóra hjá Almenna og Kristrúnar Frostadóttur, aðalhagfræðingi Kviku. Erindi Grétars fjallaði um ávöxtun eignasafna og markaða á árinu 2019 undir yfirskriftinni Aldrei vekja mig af þessum geggjaða draumi. Kristrún fór yfir stöðu og markaðsaðstæður heima og erlendis og horfur í byrjun árs en yfirskrift erindis hennar var Ávöxtun í lágvaxtaumhverfi.
Fundurinn var sendur út í beinni útsendingu á Facebook en upptöku frá fundinum er hægt að nálgast hér.