Breytilegir vextir lækka

15. apríl 2015

Breytilegir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána Almenna lífeyrissjóðsins  halda áfram að lækka í takt við þróun á markaði. Vextirnir taka mið af meðalávöxtun á skuldabréfaflokki Íbúðalánasjóðs HFF150434 í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands undangenginn mánuð að viðbættu 0,75% álagi. Breytilegir verðtryggðir vextir sjóðfélagalána frá 15.04.15 – 14.05.15 verða 3,72% en þeir voru 3,97%. Sjóðurinn kappkostar að bjóða sjóðfélögum upp á lánakjör sem eru samkeppnishæf við það sem gerist á fjármálamarkaði. Sjóðfélagar geta einnig valið um fasta verðtryggða vextir og óverðtryggða vexti, sem festir eru í 12 mánuði í senn. Smelltu hér til að skoða lánareiknivél Almenna lífeyrissjóðsins og hér til að skoða vaxtatöflu.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.