Eignir og ávöxtun – morgunfundur 26. september
16. september 2019
Streymt verður frá fundinum
Fyrsti viðburður haustsins hjá Almenna var haldinn fimmtudagsmorguninn 26. september næstkomandi. Þá fjallaði starfsfólk Almenna um ávöxtun á árinu og horfur á mörkuðum. Fyrir þá sem ekki komust var fundinum streymt á facebook síðu sjóðsins og hér fyrir neðan er hægt að sjá upptöku frá fundinum.
Dagskrá:
Fínn fyrri helmingur en hvað svo?
Kristjana Sigurðardóttir, fjárfestingarstjóri, fjallaði um ávöxtun á árinu og ræðir um horfur til framtíðar.
Flæði á skuldabréfamarkaði
Sigurður Örn Karlsson, áhættustjóri, fjallaði um flæði á skuldabréfamarkaði, helstu áhrifaþætti og hvert ávöxtunarkrafa á markaði er líkleg til að stefna.
Smelltu hér til að skoða upptöku frá fundinum.
Smelltu hér til að skoða glærur frá fundinum.