Endurskoðandi og endurskoðunarfélag
19. mars 2018
![Endurskoðandi og endurskoðunarfélag](https://www.almenni.is/wp-content/uploads/frettir/Almenni-skilti-e1644226486926-657x414.jpg)
Samkvæmt grein 6.2 í samþykktum sjóðsins skal ársfundur kjósa endurskoðanda eða endurskoðunarfélag til að endurskoða ársreikning lífeyrissjóðsins. Í greininni kemur fram að tillögum um endurskoðunarfélag skuli skila viku fyrir ársfund. Samkvæmt tillögu endurskoðunarnefndar samþykkti stjórn Almenna lífeyrissjóðsins á fundi þann 28. febrúar sl. að leggja til að Ernst & Young ehf. verði endurskoðendur Almenna lífeyrissjóðsins. Þar sem engin önnur tillaga hefur borist er Ernst & Young ehf. sjálfkjörið sem endurskoðunarfélag sjóðsins fyrir reikningsárið 2018.