Farsæll fyrri hluti árs

09. ágúst 2021

Farsæll fyrri hluti árs
Dyrhólaey. Mynd: Anna Guðmundsdóttir

Góð ávöxtun á hlutabréfamörkuðum

Góð ávöxtun hefur verið í blönduðum söfnum á fyrri hluta árs. Miklar hækkanir hafa verið bæði á innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum fyrstu sex mánuði ársins. Hækkanir á hlutabréfamörkuðum á fyrstu vikum ársins gengu að einhverju leyti til baka í febrúar og mars en síðan í lok mars hafa hlutabréfamarkaðir tekið vel við sér. Allar ávöxtunarleiðir Almenna lífeyrissjóðsins skiluðu jákvæðri ávöxtun á fyrri hluta ársins nema Ríkissafn stutt. Ævisafn I hækkaði mest á tímabilinu eða um 8,3%.

Heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI hækkaði um 13% í USD fyrstu sex mánuði ársins en hækkaði um 9,5% í íslenskum krónum þar sem íslenska krónan styrktist gagnvart USD á tímabilinu. Innlendur hlutabréfamarkaður hefur tekið vel við sér síðan í lok mars og hækkaði heildarvísitala aðallista um 22% á fyrri hluta ársins. Tvö fyrirtæki voru skráð á aðallista á fyrri hluta ársins, Síldarvinnslan í maí og svo Íslandsbanki í júní.

Ávöxtunarkrafa langra verðtryggðra skuldabréfa hefur lítið breyst á fyrstu sex mánuðum ársins. Hins vegar hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,5% á fyrri hluta ársins sem skýrir að mestu leyti hækkun á verðtryggðum löngum skuldabréfum. Vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hækkaði um 3,3% á fyrri hluta ársins. Ávöxtunarkrafa langra óverðtryggðra skuldabréf hækkaði á tímabilinu sem þýðir að skuldabréf lækka í verði og lækkaði vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng óverðtryggð skuldabréf um 0,5%.

  • Blönduð söfn, söfn sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 4,1% til 8,3%
  • Ríkissafn langt hækkaði um 2,6%
  • Ríkissafn stutt lækkaði um 0,1%
  • Húsnæðissafn hækkaði um 2,5%
  • Innlánasafn hækkaði um 2,4%

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn Ávöxtun blandaðra ávöxtunarleiða, þ.e. Ævisafna I, II, III og samtryggingarsjóðs var frá 4,1% til 8,3%. Hækkanir á innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum hafði mest áhrif til hækkunar á gengi safnanna.
Ríkissafn langt Ríkissafn langt hækkaði um 2,6%. Hækkun á vísitölu neysluverðs skýrir að mestu ávöxtun safnsins.
Ríkissafn stutt Ríkissafn stutt lækkaði um 0,1%. Hækkun á ávöxtunarkröfu óverðtryggðra skuldabréfa skýrir að mestu lækkun á gengi safnsins.
Innlánasafn Innlánasafnið hækkaði um 2,4%. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán um 94% af eignum safnsins.
Húsnæðissafn Húsnæðissafnið hækkaði um 2,5%. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.

Góð eignadreifing        

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem meðal annars má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin. Sjóðurinn birtir einnig ítarlegar upplýsingar um ávöxtun og sveiflur á heimasíðu.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.