Fjárfestingarstefna Almenna lífeyrissjóðsins 2017

02. desember 2016

Fjárfestingarstefna Almenna lífeyrissjóðsins 2017

Fjárfestingarstefna Almenna lífeyrissjóðsins fyrir árið 2017 var undirrituð af stjórn sjóðsins þann 23. nóvember 2016.

Fjárfestingarstefnan er birt í heild sinni á vefsíðu sjóðsins, sjá hér.  Helstu breytingar sem gerðar eru í fjárfestingarstefnu fyrir árið 2017 eru eftirfarandi:

  • Ný séreignarleið hefur litið dagsins ljós, Húsnæðissafn. Safnið fjárfestir í veðskuldabréfum, sértryggðum skulda­bréfum, ríkisskuldabréfum og innlánum. Safnið hentar þeim sem vilja nýta séreignarsparnað til að safna fyrir kaupum á fyrstu fasteign og/eða greiða inn á fasteignalán.
  • Vægi einstakra flokka skuldabréfa í fjárfestingarstefnunni hefur verið breytt, m.a. til samræmis við vægi þessara útgefanda á skuldabréfamarkaði. Þannig hefur hlutfall veðskuldabréfa (sjóðfélagalána) og fjármálastofnana/sértryggðra skuldabréfa verið aukið. Á móti lækkar m.a. hlutfall ríkisskuldabréfa.  Þessi þróun endurspeglar þá breytingu sem orðið hefur á íbúðalána­markaði.  Íbúðalánasjóður er ekki lengur stærsti lánveitandi húsnæðislána til einstaklinga, það hlutverk hefur færst til fjármálastofnana og lífeyrissjóða.  Búast má við að þessi þróun haldi áfram á næstu árum og það mun hafa áhrif á fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðsins.
  • Í fjárfestingarstefnunni er nú umfjöllun um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar og tilgreint með hvað hætti lífeyrissjóðurinn fylgir eftir stefnu sjóðsins, en sjóðurinn horfir m.a. til viðmiðunar­reglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (UN Principle of responsible investment).

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.