Fjárfestingastefna 2014 birt

29. nóvember 2013

Fjárfestingastefna Almenna lífeyrissjóðsins 2014 var undirrituð af stjórn sjóðsins þann 20. nóvember síðastliðinn.  Helstu breytingar á stefnunni eru þær að vægi innlendra hlutabréfa í blönduðum verðbréfasöfnum hefur verið aukið og  viðmiðanir við val á innlendum hlutabréfum hafa verið gerðar ítarlegri.

Vægi innlendra hlutabréfa aukið
Vægi innlendra hlutabréfa í fjárfestingarstefnu blandaðra verðbréfasafna hefur verið aukið. Ævisafn I stefnir nú að því að 12% eigna séu innlend hlutabréf, Ævisafn II 10%, Ævisafn III 4% og samtrygg­ingarsjóður 8%. Á móti lækkar vægi erlendra hlutabréfa í fjárfestingarstefnunni. Tilgangurinn með þessari breytingu er að auka áhættudreifingu eins mikið og kostur er á meðan sjóðurinn getur ekki fjárfest í erlendum verðbréfum vegna tíma­bund­inna gjaldeyris­hafta.

Ítarlegri viðmiðanir
Viðmiðanir við val á innlendum hlutabréfum hafa nú verið gerðar ítarlegri.  Þá hefur einnig verið bætt við heimild til að fjárfesta í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum í gegnum sjóði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.  Slíkar fjárfestingar mega vega 0 – 5% af innlendri hluta­bréfaeign hverju sinni.

Áhættustefna uppfærð
Áhættustýring hefur verið innleidd í sjóðnum á grundvelli leiðbeinandi tilmæla um áhættu­stýringu frá FME. Kafli VI um áhættu­stefnu (útdráttur) hefur nú verið uppfærður með hliðsjón af  uppfærðri áhættustefnu sjóðsins, sam­þykkt af stjórn lífeyrissjóðsins í nóvember 2013.

Smelltu hér til að skoða fjárfestingastefnuna í heild sinni.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.