Flottir Framadagar

06. febrúar 2014

Framadagar voru vel sóttir í ár eins og endranær en Almenni lífeyrissjóðurinn tók nú þátt í sýningunni annað árið í röð.  Tilgangur þátttöku sjóðsins var að leggja áherslu á að það sé aldrei of snemmt að huga að lífeyrismálum og boða sýningargesti á kynningarfund um lífeyrismál fyrir ungt fólk með yfirskriftinni „Ekki kennt í skóla“. Sýningargestir sýndu sjóðnum og fundinum verulegan áhuga en um 100 manns boðuðu komu sína á hann. Á fundinum verður haldin stutt kynning um það sem skiptir máli í lífeyrismálum þegar fólk stígur sín fyrstu skref í atvinnulífinu.

Á myndinni má sjá gesti Framadaga spjalla við starfsfólk Almenna lífeyrissjóðsins.

 

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.