Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 15. mars

14. mars 2018

Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 15. mars

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn fimmtudaginn 22. mars næstkomandi, sjá nánar hér.

Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal skila framboðum til aðalstjórnar ekki síðar en viku fyrr eða nánar tiltekið kl. 24:00 fimmtudaginn 15. mars 2018. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.

Samkvæmt samþykktum skal stjórn sjóðsins skipuð þremur konum og þremur körlum. Á ársfundi sjóðsins lýkur kjörtímabili Ástríðar Jóhannesdóttur og Huldu Rósar Rúriksdóttur og því skal kjósa tvær konur í aðalstjórn. Að auki skal kjósa einn varastjórnarmann sem má vera af hvoru kyni þar sem fyrir eru varastjórnarmenn af sitt hvoru kyni

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.