Góð raunávöxtun á árinu 2015

20. janúar 2016

Á árinu 2015 var góð ávöxtun í öllum söfnum Almenna lífeyrissjóðsins. Töluverðar sveiflur voru á erlendum mörkuðum á síðastliðnu ári og nokkurs óróleika gætti á þeim undir lok árs sem enn sér ekki fyrir endann á.

  • Hæsta ávöxtunin var í samtryggingarsjóði sem hækkaði um 8,6% sem samsvarar 6,5% raunávöxtun.
  • Blönduð söfn, sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 6,8%-8,6% á árinu 2015.
  • Ríkissafn langt hækkaði um 7,7% sem samsvarar 5,6% raunávöxtun.
  • Allar ávöxtunarleiðir hækkuðu á árinu og skiluðu raunávöxtun.
  • Raunávöxtun hefur verið góð undanfarin ár og síðastliðin fimm ár hefur hún verið 4,2% til 7,0% á ári í blönduðum söfnum.

 

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn hækkuðu mest Blandaðar ávöxtunarleiðir, þ.e. Ævisafn I, II, III og samtryggingarsjóður hækkuðu á árinu um 6,8% til 8,6%. Lækkun ávöxtunarkröfu á löngum verðtryggðum skuldabréfum vóg þyngst í hækkun safnanna á árinu. Raunávöxtun blandaðra safna var á bilinu 4,7% – 6,5%
Ríkissafn-langt hækkaði Ríkissafn-langt hækkaði um 7,7% á árinu sem er hæsta ávöxtun safnsins síðan 2011. Ávöxtunarkrafa langra ríkisskuldabréfa lækkaði verulega með tilheyrandi gengishagnaði sem skýrir góða ávöxtun.
Ríkissafn-stutt hækkaði Ríkissafn-stutt hækkaði um 4,9% á árinu sem samsvarar 2,8% raunávöxtun. Ávöxtun safnsins skýrist af lækkun á ávöxtunarkröfu óverðtryggðra skuldabréfa og lágri verðbólgu.
Verðtryggð innlán hækkuðu Innlánasafnið hækkaði um 4,0% á árinu sem samsvarar 2,0% raunávöxtun. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vógu verðtryggð innlán um 93% af eignum í árslok.

Góð eignadreifing

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Þrátt fyrir gjaldeyrishöft á liðnum árum eru eignir ævisafna og samtryggingarsjóðs vel dreifðar á útgefendur, atvinnugreinar og lönd. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem m.a. má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.