Lífið á efstu hæð – morgunfundur 14. mars
06. mars 2019
![Lífið á efstu hæð – morgunfundur 14. mars](https://www.almenni.is/wp-content/uploads/Mynd-af-bók-e1551884354358-657x414.jpg)
Hvenær get ég byrjað að taka eftirlaun?
Hvað þarf ég að vita og gera?
Á sjóðfélagafundi Almenna leitast Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri sjóðsins við að svara þessum spurningum og fleirum sem brenna á þeim sem hyggjast fara á eftirlaun á næstu árum.
Erindi fundarins byggir á nýútkominni bók eftir Gunnar en í henni er bent á atriði sem gott er að hafa í huga til að undirbúa fjármál við starfslok.
Tími: 14. mars kl. 8:30-9:30
Staðsetning: Skrifstofa Almenna, Borgartúni 25, 8. hæð (ath. fundurinn hefur verið færður á 8. hæð).
Vinsamlega smelltu hér til að skrá þátttöku. Athugið að sætafjöldi er takmarkaður.
Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna beint frá fundinum.