Sjálfkjörið í aðalstjórn
20. maí 2021
![Sjálfkjörið í aðalstjórn](https://www.almenni.is/wp-content/uploads/frettir/75398301_2551050455128476_4237038009767165952_o-e1645182265485-657x414.jpg)
Varamaður kosinn á ársfundi
Tvö framboð bárust í jafn mörg laus sæti í aðalstjórn Almenna lífeyrissjóðisins sem rann út á miðnætti 19. maí. Framboð barst frá Örnu Guðmundsdóttir, lækni og Huldu Rós Rúriksdóttur, hæstaréttarlögmanni en þær sátu báðar í stjórn fyrir. Arna og Hulda Rós eru því sjálfkjörnar í aðalstjórn sjóðsins til næstu þriggja ára. Á ársfundi Almenna sem haldinn verður 27. maí næstkomandi verður kosið um einn varamann sem vera má af hvoru kyninu sem er þar sem fyrir í varastjórn eru karl og kona.