Sjö sækjast eftir tveimur stjórnarsætum
29. maí 2020
Sjö framboð hafa borist í tvö sæti í aðalstjórn Almenna lífeyrissjóðsins á ársfundi sjóðsins en framboðsfrestur rann út á miðnætti 28. maí. Ársfundurinn verður haldinn 4. júní kl. 17:15 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.
Á fundinum á að kjósa tvo aðalmenn í stjórn til þriggja ára og einn varamann. Í samþykktum sjóðsins er kveðið á um að stjórn sjóðsins skuli skipuð þremur konum og þremur körlum og þriggja manna varastjórn sé skipuð fulltrúum beggja kynja. Á fundinum lýkur kjörtímabili einnar konu og eins karls í aðalstjórn og einu konunnar í varastjórn. Í aðalstjórn skal því kjósa eina konu og einn karl til þriggja ára en í varastjórn skal kjósa eina konu til þriggja ára. Kallað verður eftir framboðum til varastjórnar á ársfundinum.
Eftirfarandi sjóðfélagar hafa tilkynnt framboð sitt og eru samkvæmt samþykktum sjóðsins kjörgengir til aðalstjórnar til þriggja ára:
- Áslaug Elín Grétarsdóttir, lögfræðingur.
- Elvar Steinn Þorkelsson, viðskiptafræðingur.
- Hulda Sigurbjörnsdóttir, löggildur endurskoðandi.
- Magnús Bjarnason – viðskiptafræðingur.
- Oddgeir Ágúst Ottesen, hagfræðingur.
- Ólafur H. Jónsson – Byggingartæknifræðingur.
- Sigríður Magnúsdóttir – Arkitekt.