Skattar og skattleysismörk árið 2020

20. desember 2019

Skattar og skattleysismörk árið 2020
Mynd: Halldór Bachmann

Skattþrep og skattleysismörk sem gilda fyrir árið 2020 hafa verið birt á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Verulegar breytingar verða á tekjuskatti einstaklinga á milli ára. Skattþrep verða þrjú, persónuafsláttur verður 655.538 kr. fyrir árið 2020 eða 54.628 krónur á mánuði og eru skattleysismörk launatekna á mánuði því 162.398 krónur. Skattleysismörk lífeyristekna eru hins vegar 155.902. Eftirfarandi skattþrep og prósentur gilda fyrir árið 2020:

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
1. þrep 0 – 336.916 krónur 35,04%
2. þrep 336.917 – 945.873 krónur 37,19%
3. þrep Frá 945.874 krónum 46,24%

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa á lengra tímabil. Þetta er gott að hafa í huga við ákvörðun um úttekt séreignar.

Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 35,04% skattur af fyrstu 336.916 krónum, 37,19% af næstu 282.288 og 46,24% af öllum tekjum sem eru umfram 945.873 krónur.

Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í júlí árið eftir. Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. júlí ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.