Skatthlutföll og persónuafsláttur 2015

12. janúar 2015

Frá og með 1. janúar 2015 hækka viðmiðunartekjur ríkisskattstjóra um 6,6%. Efri mörk á fyrsta skattþrepi verða því 309.104 eftir hækkun í stað 290.000 króna á síðasta ári. Frá og með 1. janúar eftirfarandi skattþrep  og skattprósentur gildi samkvæmt vef ríkisskattstjóra.

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
1. þrep 0 – 309.140 krónur 37,30%
2. þrep 309.140 – 836.404 krónur 39,74%
3. þrep Yfir 836.404 krónur 46,24%

Persónuafsláttur verður 50.902 krónur á mánuði og eru skattleysismörk á mánuði því 136.466 krónur.

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

  • Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa greiðslum á lengra tímabil.
  • Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 37,30% skattur af fyrstu 309.140 krónum, 39,74% skattur af næstu 527.264 krónum og 46,24% af öllum tekjum sem eru umfram kr. 836.404 krónum.
  • Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í ágúst árið eftir.

Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. ágúst ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.