Skattþrep á árinu 2023

06. janúar 2023

Skattþrep á árinu 2023

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt upplýsingar um skattþrep og skattaprósentur fyrir árið 2023. Eins og sjá má í þessari frétt frá ráðuneytinu haldast skattprósentur þær sömu á milli ára en persónuafsláttur og þrepamörk hækka um 10,7%. Þessi staðgreiðsluprósenta miðar við að meðal útsvarsprósenta verði 14,67%, en ekki liggur fyrir hver endanleg útsvarsprósenta verður. Persónuafsláttur á árinu 2023 verður 715.981 krónur eða 59.665 krónur á mánuði og eru skattleysismörk launatekna á mánuði því kr. 197.619 krónur. Skattleysismörk lífeyristekna eru hins vegar 189.714.

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
1. þrep 0 – 409.986 krónur 31,45%
2. þrep 409.987– 1.151.012 37,95%
3. þrep Yfir 1.151.012  krónum 46,25%

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa á lengra tímabil. Þetta er gott að hafa í huga við ákvörðun um úttekt séreignar.

Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 31,45% skattur af fyrstu 409.986 krónum, 37,95% af næstu 741.026 og 46,25% af öllum tekjum sem eru umfram 1.151.012 krónur.

Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í júlí árið eftir. Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. júlí ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef Skattsins www.skatturinn.is

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.