Skattþrep og skattleysismörk 2016

29. desember 2015

Tilkynnt hefur verið um skattþrep og skattleysismörk sem gilda fyrir árið 2016 á vef Ríkisskattstjóra. Persónuafsláttur hækkar um 2% verður 51.920 krónur á mánuði og eru skattleysismörk launatekna á mánuði því 145.659 krónur miðað við 37,13% staðgreiðsluprósentu. Skattleysismörk lífeyristekna eru hins vegar 139.833. Eftirfarandi skattþrep og prósentur gilda fyrir árið 2016:

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
1. þrep 0 – 336.035 krónur 37,13%
2. þrep 336.036 – 836.990 krónur 38,35%
3. þrep Yfir 836.990 krónum 46,25%

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

  • Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa greiðslum á lengra tímabil.
  • Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 37,13% skattur af fyrstu 336.035 krónum, 38,35% skattur af næstu 500.955 krónum og 46,25% af öllum tekjum sem eru umfram kr. 836.990 krónum.
  • Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í ágúst árið eftir.

Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. ágúst ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.