Skattþrep og skattleysismörk 2017

29. desember 2016

Tilkynnt hefur verið um skattþrep og skattleysismörk sem gilda fyrir árið 2017 á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Skattþrepum fækkar í tvö, persónuafsláttur hækkar um 1,9%, verður 52.907 krónur á mánuði og eru skattleysismörk launatekna á mánuði því 149.192 krónur. Skattleysismörk lífeyristekna eru hins vegar 143.224. Eftirfarandi skattþrep og prósentur gilda fyrir árið 2017:

Skattþrep

Viðmiðunartekjur á mánuði

Staðgreiðsluprósenta
Neðra þrep 0 – 834.707 krónur 36,94%
Efra þrep Frá 834.708 krónum 46,24%

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

  • Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa greiðslum á lengra tímabil.
  • Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 36,94% skattur af fyrstu 834.707 krónum og 46,24% af öllum tekjum sem eru umfram þá fjárhæð.
  • Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í júlí árið eftir.

Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. júlí ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.