Skattþrep og skattleysismörk 2018

02. janúar 2018

Skattþrep og skattleysismörk 2018
Mynd: Halldór Bachmann

Skattþrep og skattleysismörk sem gilda fyrir árið 2018 hafa verið birt á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Skattþrep eru tvö, persónuafsláttur hækkar um 1,9%, verður 646.739 kr. fyrir árið 2018 eða 53.895 krónur á mánuði og eru skattleysismörk launatekna á mánuði því 151.978 krónur. Skattleysismörk lífeyristekna eru hins vegar 145.899. Eftirfarandi skattþrep og prósentur gilda fyrir árið 2018:

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
Neðra þrep 0 – 893.713 krónur 36,94%
Efra þrep Frá 893.714 krónum 46,24%

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

  • Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa greiðslum á lengra tímabil.
  • Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 36,94% skattur af fyrstu 893.713 krónum og 46,24% af öllum tekjum sem eru umfram þá fjárhæð.
  • Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í júlí árið eftir.

Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. júlí ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.