Almenni tilnefndur í þriðja sinn

25. júní 2015

Tímaritið European Pensions veitir árlega fjölda viðurkenninga til þeirra lífeyrissjóða sem þykja, að þeirra mati, skara fram úr á hinum ýmsu sviðum lífeyrisþjónustu. Fimmtudaginn 25. júní tilkynnti sjóðurinn um sigurvegara ársins 2015.

Þetta var þriðja árið í röð sem Almenni lífeyrissjóðurinn hefur verið tilnefndur fyrir upplýsingagjöf til sjóðfélaga en að þessu sinni voru 5 aðrir tilnefndir , víðsvegar að í Evrópu. Að þessu sinni hlaut enski lífeyrissjóðurinn Kingfisher Pension Trustee Limited viðurkenninguna en sjóðurinn er með höfuðstöðvar í London og hefur áður hlotið fjölda viðurkenninga.

Almenni lífeyrissjóðurinn lítur á tilnefninguna sem hvatningu til að veita góða þjónustu og faglega ráðgjöf.

Smelltu hér til að skoða síðuna með tilnefningum.

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.