Getum við aðstoðað?

Rafrænt yfirlit og fréttabréf

10. ágúst 2023

Rafrænt yfirlit og fréttabréf

Á Sjóðfélagavef Almenna liggja nú fyrir yfirlit sem sýna hreyfingar frá 1. janúar til 30. júní 2023 og upplýsingar um lífeyrisréttindi og inneign í lok tímabilsins. Smelltu hér til að fara á Sjóðfélagavef. Á Sjóðfélagavefnum eru þessar og frekari upplýsingar settar fram á myndrænu og aðgengilegu formi sem þægilegt er að glöggva sig á.

Fréttabréf Almenna kemur út samhliða en þetta er í fyrsta sinn sem það er eingöngu gefið út rafrænt en fyrr á árinu voru samþykkt lög sem gerðu þetta heimilt. Í fréttabréfinu er að finna samantekt á því helsta sem hefur verið fréttnæmt hjá Almenna lífeyrissjóðnum undanfarna mánuði. Fréttabréfið má sjá hér fyrir neðan.