Stjórnarkjöri 2025 lokið
Á þessari síðu eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins árið 2025.
Kosningunni lauk kl. 16:00 2. apríl
Að þessu sinni eru tvö sæti karla til kjörs í aðalstjórn og tvö sæti í varastjórn, annað skal skipað karli en hitt má skipa karli eða konu.
Hér fyrir neðan má sjá frambjóðendurna 32 í stafrófsröð. Hægt er að smella á nafn eða mynd hvers og eins til að skoða nánari upplýsingar.
Öllum frambjóðendum gafst kostur á að kynna sig með upplýsingum um starfs- og námsferil, stuttu kynningarbréfi og myndbandi.
Hátt í 60 þúsund sjóðfélagar hafa atkvæðisrétt í kosningunum og eru þeir hvattir til að kynna sér alla frambjóðendur og nýta kosningarétt sinn.
Úrslit kosninganna verða kynnt á ársfundi sjóðsins sem haldinn verður fimmtudaginn 3. apríl 2025 á Hilton Reykjavík Nordica kl. 17:15.
Streymt verður frá fundinum hér: