Erlend hlutabréf draga vagninn

10. október 2018

Erlend hlutabréf draga vagninn
Mynd: Anna Guðmundsdóttir

Hækkun á heimsvísitölu frá miðju ári

Miklar sveiflur hafa verið í ávöxtun erlendra hlutabréfa í íslenskum krónum á árinu, bæði hafa verið miklar sveiflur á erlendum hlutabréfamörkuðum og einnig á gengi íslensku krónunnar gagnvart USD. Erlendir hlutabréfamarkaðir fóru skarpt af stað í ársbyrjun en gáfu fljótt eftir og hafa verið miklar sveiflur í ávöxtun erlendra hlutabréfa á árinu.  Frá miðju ári hafa verið töluverðar hækkanir og í lok september hefur heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI hækkað um 9% í USD og um 15,9% í íslenskum krónum. Íslenska krónan styrktist á móti USD fyrstu mánuði ársins en hefur gefið eftir frá því í maí og í lok þriðja ársfjórðungs hefur hún veikst um 6,4% gagnvart USD á árinu. Einnig hafa verið miklar sveiflur á innlendum hlutabréfa­markaði. Miklar hækkanir voru fyrstu mánuði ársins en þær hækkanir hafa gengið til baka að fullu og hefur heildarvísitala aðallista lækkað í lok september um 0,1% frá áramótum. Ávöxtunarkrafa langra verðtryggðra skuldabréfa hefur lækkað frá áramótum sem þýðir gengishagnað fyrir löng verðtryggð skuldabréf. Vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hækkaði um 3,9% fyrstu níu mánuði ársins. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 2,2% frá áramótum m.v. lok þriðja ársfjórðungs.

  • Ævisafn I skilaði hæstri ávöxtun fyrstu níu mánuði ársins og hækkaði um 6,7%, önnur blönduð söfn, söfn sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, hækkuðu um 4,5%-5,7%
  • Ríkissafn langt hækkaði um 3,6%
  • Húsnæðissafn hækkaði um 3,6%
  • Innlánasafn hækkaði um 3,6%
  • Ríkissafn stutt hækkaði um 2,4%

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn Ávöxtun blandaðra ávöxtunarleiða, þ.e. Ævisafna I, II, III og samtryggingarsjóðs var frá 4,5% til 6,7%. Veiking krónunnar og hækkun á erlendum hlutabréfum hafði mest áhrif á hækkun safnanna.
Ríkissafn langt Ríkissafn langt hækkaði um 3,6%. Ávöxtun langra verðtryggðra skuldabréfa og hækkun á vísitölu neysluverðs skýra að mestu ávöxtun safnsins.
Ríkissafn stutt Ríkissafn stutt hækkaði um 2,4%. Lágt vaxtaumhverfi og væntingar um verðbólgu hafa mest áhrif á ávöxtun safnsins.
Innlána-safn Innlánasafnið hækkaði um 3,6%. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán um 94% af eignum safnsins.
Húsnæðis-
safn
Húsnæðissafnið hækkaði um 3,6%. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.

Góð eignadreifing        

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem meðal annars má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin. Sjóðurinn birtir einnig ítarlegar upplýsingar um ávöxtun og sveiflur á heimasíðu, sjá nánar hér.

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.