Getum við aðstoðað?

Séreignalífeyrissparnaður hjá Almenna

28. maí 2025

Séreignalífeyrissparnaður hjá Almenna

Almenna lífeyrissjóðnum er umhugað um að sjóðfélagar og aðrir taki upplýstar ákvarðanir þegar kemur að vali á vörsluaðila með séreignarlífeyrissparnaði þeirra. Því tengdu hefur því miður borið á því að nafn Almenna lífeyrissjóðsins hafi verið dregið inn í og jafnvel notað í tengslum við það að flytja hluta skylduiðgjalds yfir í form lífeyristrygginga. Af þessu tilefni vill Almenni árétta að sjóðurinn mælir alls ekki með því að hluti skylduiðgjalds sé notað til að greiða í lífeyristryggingar. Raunar álítur sjóðurinn slíka ráðstöfun til þess fallna að stuðla að lægri eignum til að standa undir lífeyrisgreiðslum.

Sjóðurinn hefur fengið hvatningu um að setja fram upplýsingar sem stuðla að upplýstri ákvarðanatöku í þessum efnum. Til að bregðast við hefur sjóðurinn nú opnað sérstaka upplýsingasíðu „Tölum um peninga“www.almenni.is/tolum-um-peninga. Á síðunni er meðal annars að finna myndband með samanburði, samantektir, útskýringar og tenglar á gagnlegt efni. Frekara efni verður birt á síðunni eftir því sem efni standa til.

Almenni tekur hlutverki sínu sem lífeyrissjóður alvarlega. Þess vegna vonar sjóðurinn að með vefsíðunni takist að aðstoða og stuðla að vandaðra vali sjóðfélaga á vörsluaðilum fyrir lífeyrissparnað. Í þessu sambandi bendir er bent á að Almenni bíður upp á 7 fjölbreyttar og góðar ávöxtunarleiðir sem henta vel til að ávaxta séreignarlífeyrissparnað sjóðfélaga.