Skattaþrep og skattleysismörk 2022

03. janúar 2022

Skattaþrep og skattleysismörk 2022

Skattþrep og skattleysismörk sem gilda fyrir árið 2022 hafa verið birt á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins.  Skattþrep verða áfram þrjú og skattprósentur þær sömu. Persónuafsláttur verður 646.993 kr. fyrir árið 2022 eða 53.916 krónur á mánuði og eru skattleysismörk launatekna á mánuði því kr. 178.577 krónur. Skattleysismörk lífeyristekna eru hins vegar 171.434. Eftirfarandi skattþrep og prósentur gilda fyrir árið 2022:

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
1. þrep 0 – 370.482 krónur 31,45%
2. þrep 370.483 – 1.040.106 37,95%
3. þrep Frá 1.040.107 krónum 46,25%

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

 

Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa á lengra tímabil. Þetta er gott að hafa í huga við ákvörðun um úttekt séreignar.

Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 31,45% skattur af fyrstu 370.482 krónum, 37,95% af næstu 669.624 og 46,25% af öllum tekjum sem eru umfram 1.040.106 krónur.

Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í júlí árið eftir. Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. júlí ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef Skattsins www.rsk.is

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.