Ársfundur – sjálfkjörið í stjórn

24. mars 2017

Ársfundur – sjálfkjörið í stjórn

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins 2017 var haldinn fimmtudaginn 23. mars á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Á fundinum var lögð fram skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2016 en auk þess var kosið um tvö laus sæti í aðalstjórn og eitt í varastjórn. Tímabili Ólafs H. Jónssonar og Sigríðar Sigurðardóttur í aðalstjórn lauk, sem og Önnu Karenar Hauksdóttur varamanns Ólafur gaf kost á sér á ný en Sigríður ekki.

Þar sem tvö framboð bárust í tvö laus sæti í aðalstjórn voru þau Ólafur H. Jónsson, öryggisstjóri hjá Skeljungi og Sigríður Magnúsdóttir, arkitekt hjá Teiknistofunni Tröð sjálfkjörin í aðalstjórn til þriggja ára. Í varastjórn var Anna Karen Hauksdóttir kjörin til þriggja ára.

Á fundinum flutti Ólafur Jónsson skýrslu stjórnar, Gunnar Baldvinsson fór yfir ársreikning og tryggingafræðilega stöðu og loks kynnti Kristjana Sigurðardóttir fjárfestingarstefnu sjóðsins.

Á ársfundinum voru lagðar fram tillögur um breytingar á samþykktum sem voru samþykktar.

Skýrsla stjórnar á ársfundi 2017
Glærur frá fundinum
Tryggingafræðileg athugun 2016
Ársskýrsla 2016
Breytingar á samþykktum sem voru samþykktar
Fundargerð Ársfundar 2017

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.