Skattþrep og skattleysismörk 2021

06. janúar 2021

Skattþrep og skattleysismörk 2021
Mynd: Halldór Bachmann

Skattþrep og skattleysismörk sem gilda fyrir árið 2021 hafa verið birt á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Verulegar breytingar verða á tekjuskatti einstaklinga á milli ára. Skattþrep verða þrjú, persónuafsláttur verður 609.509 kr. fyrir árið 2021 eða 50.792 krónur á mánuði og eru skattleysismörk launatekna á mánuði því 168.230 krónur. Skattleysismörk lífeyristekna eru hins vegar 161.500. Eftirfarandi skattþrep og prósentur gilda fyrir árið 2021:

Skattþrep Viðmiðunartekjur á mánuði Staðgreiðsluprósenta
1. þrep 0 – 349.018 krónur 31,45%
2. þrep 349.019 – 979.847 37,95%
3. þrep Frá 979.847 krónum 46,25%

Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.

Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa á lengra tímabil. Þetta er gott að hafa í huga við ákvörðun um úttekt séreignar.

Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 31,45% skattur af fyrstu 349.018 krónum, 37,95% af næstu 630.828 og 46,25% af öllum tekjum sem eru umfram 979.847 krónur.

Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í júlí árið eftir. Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1. júlí ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.

Nánari upplýsingar um er að finna á vef Skattsins www.rsk.is

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.