Enn sveiflast markaðir

05. júlí 2018

Enn sveiflast markaðir
Mynd: Anna Guðmundsdóttir

Sveiflukenndur fyrri helmingur árs

Miklar sveiflur hafa verið á erlendum hlutabréfamörkuðum frá áramótum og hefur heimsvísitala hlutabréfa MSCI hækkað um 0,4% í USD á fyrri hluta ársins. Íslenska krónan styrktist gagnvart USD fyrstu mánuði ársins en sú styrking hefur gengið til baka undanfarnar vikur og um mitt ár hefur krónan veikst um 1,9% gagnvart USD. Heimsvísitala erlendra hlutabréfa MSCI hefur því hækkað um 2,3% í íslenskum krónum. Innlend hlutabréf hafa skilað hæstri ávöxtun einstakra eignaflokka það sem af er ári, þrátt fyrir töluverða lækkun í maí og hefur heildarvísitala aðallista hækkað um 4,6% um mitt ár. Ávöxtunarkrafa langra verðtryggðra skuldabréfa hefur hækkað frá áramótum sem þýðir gengistap á löngum verðtryggðum skuldabréfum en ávöxtunarkrafa styttri verðtryggðra skuldabréfa hefur lækkað sem þýðir gengishagnað á þeim skuldabréfaflokkum. Vísitala Kauphallarinnar fyrir 10 ára löng verðtryggð skuldabréf hækkaði um 0,9% á fyrri helmingi ársins. Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,3% á fyrri hluta ársins.

  • Húsnæðissafnið hækkaði mest á fyrri árshelmingi eða um 2,5%
  • Ávöxtun blandaðra safna, söfn sem fjárfesta í skuldabréfum, hlutabréfum og innlánum, var frá 1,8% til 2,2%
  • Innlánasafnið hækkaði um 2,2%
  • Ríkissafn stutt hækkaði um 1,7%
  • Ríkissafn langt hækkaði um 1,3%

Upplýsingar um afkomu ávöxtunarleiða Almenna lífeyrissjóðsins:

Blönduð söfn Ávöxtun blandaðra ávöxtunarleiða, þ.e. Ævisafna I, II, III og samtryggingarsjóðs var frá        1,8% til 2,2%. Veiking krónunnar og hækkun á erlendum hlutabréfum hafði mest áhrif á hækkun safnanna. Innlend hlutabréf og vísitala langra verðtryggðra skuldabréfa hækkaði einnig á fyrri hluta ársins.
Ríkissafn langt Ríkissafn langt hækkaði um 1,3%. Ávöxtun langra verðtryggðra skuldabréfa og hækkun á vísitölu neysluverðs skýra að mestu ávöxtun safnsins.
Ríkissafn stutt Ríkissafn stutt hækkaði um 1,7%. Lágt vaxtaumhverfi og væntingar um verðbólgu hafa mest áhrif á ávöxtun safnsins.
Innlána-safn Innlánasafnið hækkaði um 2,2%. Safnið ávaxtar eignir sínar á bundnum innlánsreikningum og vega verðtryggð innlán um 93% af eignum safnsins.
Húsnæðis-safn Húsnæðissafnið hækkaði um 2,5%. Safnið ávaxtar eignir sínar að mestu í veðskuldabréfum, innlánum og í stuttum óverðtryggðum ríkisskuldabréfum.

 

Góð eignadreifing        

Ávöxtun verðbréfasafna ræðst af eignasamsetningu og ávöxtun einstakra verðbréfaflokka. Almenni lífeyrissjóðurinn leggur mikla áherslu á góða eignadreifingu til að draga úr heildaráhættu safnanna. Sjóðurinn birtir mánaðarlega upplýsingar um ávöxtunarleiðir þar sem meðal annars má lesa um eignasamsetningu. Smellið hér til að skoða upplýsingablöðin. Sjóðurinn birtir einnig ítarlegar upplýsingar um ávöxtun og sveiflur á heimasíðu, sjá nánar hér.

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.