Stjórnarkjör 2023

Á þessari síðu eru upplýsingar um tólf frambjóðendur til stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins árið 2023.
Kosið er um tvö laus sæti í aðalstjórn og eitt laust sæti í varastjórn.

Að þessu sinni eru laus sæti einnar konu og eins karls í aðalstjórn en konur eru einar kjörgengar í varastjórn.

Hér fyrir neðan má sjá frambjóðendurna tólf í stafrófsröð. Hægt er að smella á nafn eða mynd hvers og eins til að skoða nánari upplýsingar.

Aðal­björn
Þórólfs­son
Albert Þór
Jónsson
Guð­mundur
Fylk­is­son
Herdís Pála Pálsdóttir Jóhann Sveinn Frið­leifs­son Kristó­fer Már Mar­ons­son
Lára Jón­as­dótt­ir Magnús Davíð Norð­dahl Oddur
Óla­son
Sig­ríður
Magnús­dótt­ir
Sól­veig
Stef­áns­dótt­ir
Val­þór Druz­in Halldórsson

 

Öllum frambjóðendum gafst kostur á að kynna sig með upplýsingum um starfs- og námsferil, stuttu kynningarbréfi og myndbandi.

Yfir 50 þúsund sjóðfélagar hafa atkvæðisrétt í kosningunum og eru þeir hvattir til að kynna sér alla frambjóðendur og nýta kosningarétt sinn.

Rafræn kosning stendur yfir frá kl. 12:00 þann 22. mars og lýkur kl. 16:00 þann 29. mars 2022.

Kosningu lokið

Úrslit kosninganna verða kynnt á ársfundi sjóðsins sem haldinn verður fimmtudaginn 30. mars 2023 á Grand Hótel Reykjavík kl. 17:15.

Streymt verður frá fundinum.

 

 

 

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu fréttir um lífeyrismál, viðburði og starfsemi sjóðsins.